syngdu með
Hafdísi

Tónlist, söngur og gleði fyrir alla.
Komdu og syngdu með mér – lögin sem þú þekkir.

„We are in this together.“
— Janis Joplin

## SYNGDU MEÐ HAFDÍSI ##

Tónlist, söngur og fjör fyrir alls konar tilefni!Syngdu með Hafdísi býður upp á skemmtilega og létta tónlistarupplifun þar sem ég syng fyrir ykkur – og þið syngið með!Ég mæti með röddina, tónlistina og leiði ykkur inn í sönginn. Fullkomið fyrir árshátíðir, vinnustaðafjör, afmæli, árgangsmót, fjölskylduboð eða einfaldlega þegar tilefni er til að syngja saman.Ég syng – þið syngið með! ❤️Hvað er skemmtilegra en að syngja saman?
Lifandi og skemmtilegt singalong

SÉRSNIÐIÐ SYNGDU MEÐ

Viltu gera eitthvað alveg sérstakt fyrir þinn hóp?Sérsniðið Syngdu með er sérstaklega útfært fyrir tilefnið, hópinn eða ákveðið þema. Við getum valið lög sem tengjast hópnum, ákveðnu tímabili, árgangi eða jafnvel sameiginlegum minningum.Fullkomið fyrir árgangsmót, afmæli, ættarmót, vinnustaði og sérstök tilefni. ❤️

## STÝRT KARAOKE ##

Viltu frekar taka lagið sjálf/ur?Þá er stýrt karaoke frábær kostur! Ég sé um tónlistina, textana og utanumhaldið svo þú getir bara gripið hljóðnemann og sungið.Hvort sem þú ert með einn stóran söngvara í hópnum eða heilt herbergi af fólki sem heldur að það geti sungið – þá er markmiðið alltaf það sama: að hafa gaman! 😄🎶

🥳 ÞÚ VELUR TILEFNIÐ – ÉG SÉ UM FJÖRIÐ! 🥳Langar þig að vita meira eða fá tilboð fyrir þinn viðburð?Hafðu samband og við finnum eitthvað sem hentar þér og þínum hópi. ❤️🎤 Syngdu með Hafdísi

Langar þig að heyra þitt uppáhaldslag?
Finndu lagið sem þú vilt heyra og sendu svo inn óskina þína. ❤️
👉 Ýttu á „VELDU LAG“ eða skannaðu QR-kóðann með símanum þínum og skoðaðu lagalistann.

🎵 Finnst lagið ekki á listanum?
Ekkert mál! Settu það bara inn sem óskalag og við sjáum hvort það leynist ekki einhvers staðar. 😉🎤

um hafdísi

Tónlistin hefur alltaf verið stór hluti af mínu lífi. Hún hefur fylgt mér frá því ég man eftir mér – allt frá því að halda tónleika uppi á bílskúrsþaki heima, yfir í að stofna fyrstu kvennahljómsveitina í Vestmannaeyjum.Mér finnst fátt skemmtilegra en að skapa góða stemningu og fá fólk til að taka þátt, syngja með og njóta stundarinnar.Ég býð upp á söngskemmtun, karaoke og „Syngdu með Hafdísi“ fyrir fyrirtæki, félagasamtök, veislur og ýmis tilefni.Ég hef meðal annars sungið á dvalar- og hjúkrunarheimilum sem ég elska að gera, þar hef ég flutt gömlu góðu íslensku dægurlögin. Það er eitthvað alveg sérstakt við að sjá fólk syngja með, rifja upp gamlar minningar og njóta tónlistarinnar saman. ❤️

Hafðu samband

Langar þig í skemmtilega tónlist og góða stemningu á þínum viðburði?Hafðu samband og við finnum saman það fyrirkomulag sem hentar þér best.Hafdís Víglundsdóttir